Framúrskarandi fyrirtækjum fjölgar milli ára

Fyrirtækjum í ferðaþjónustu fækkar mikið – Byggingar- og sjávarútvegsfyrirtækjum fjölgar – Hlutfall kvenna í stjórnum og meðal stjórnenda stendur í stað

Creditinfo hefur birt lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki fyrir rekstrarárið 2020. Þetta er í tólfta sinn sem Creditinfo veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu og verða þær veittar í Hörpu í dag. Í ár eru 853 fyrirtæki á listanum eða um 2 prósent allra virkra fyrirtækja á Íslandi. Skráningum á listann fjölgar lítillega á milli ára en á sama tíma í fyrra voru 842 fyrirtæki á listanum. Rétt er að árétta að til ársloka geta enn bæst fyrirtæki á listann.

Samsetning listans getur breyst nokkuð á milli ára, en til að teljast til Framúrskarandi fyrirtækja þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði um stöðugan rekstur þrjú ár aftur í tímann. 

Fyrirtæki raðast á listann eftir ársniðurstöðu, en í ár vermir Marel efsta sæti listans. Fyrirtækið hefur nú verið á lista Framúrskarandi fyrirtækja samfleytt frá árinu 2013. Í öðru sæti er Eyrir Invest sem kom nýtt inn á lista 2019 og í því þriðja Landsvirkjun, sem setið hefur á listanum frá árinu 2018.

„Afar ánægjulegt er að sjá fjölgun Framúrskarandi fyrirtækja á milli ára og þá sérstaklega í ljósi þess hversu erfitt árið var mörgum fyrirtækjum og þá sér í lagi þeim sem orðið hafa fyrir hvað mestum neikvæðum áhrifum vegna kórónuveirufaraldursins. Líklega er alveg óhætt að segja að fyrirtækin sem á listanum eru í ár séu sannarlega þau sem skara fram úr, en um leið endurspeglar hann áhrif efnahagsaðstæðna á einstaka geira. Til að teljast framúrskarandi þarf að uppfylla strangar kröfur og fyrirtækin sem það gera eru líklegri til að ná árangri og standast áföll. Fyrirtækin á listanum mega því vel vera stolt af árangri sínum,“ segir Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.

Ferðaþjónustufyrirtækjum fækkar

Flest fyrirtæki á listanum eru meðalstór eða 398 talsins, 230 stór fyrirtæki og 225 flokkast sem lítil. Í flokki stórra fyrirtækja er Marel í efsta sæti, í öðru sæti er Eyrir Invest, sem kom nýtt inn á listann í fyrra og Landsvirkjun er í því þriðja. DK Hugbúnaður er í efsta sæti í flokki meðalstórra fyrirtækja á listanum og þar á eftir Al-verk og Örninn Hjól. Í flokki lítilla fyrirtækja var Heyrnartækni efst á lista og þar á eftir komu Tæknibær og Barnabörn. 

Það sem einkennir listann í ár er að byggingarfyrirtækjum fjölgar líkt og í fyrra og eru nú orðin 127 talsins. Fyrirtækjum sem flokkast undir ferðaþjónustu fækkar verulega á lista, eða úr 70 fyrirtækjum í lok síðasta árs niður í 23 núna. Gera má ráð fyrir að fækkunin sé vegna áhrifa COVID-19 faraldursins og tilheyrandi fækkunar ferðamanna á rekstur ferðaþjónustufyrirtækja. Þá fjölgar fyrirtækjum í sjávarútvegi úr 60 í 69.

124 koma ný inn á lista

Af fyrirtækjunum 853 hafa 60 verið framúrskarandi frá upphafi, en nokkur hreyfing getur verið inn og út af lista í takti við breytingar á rekstrarumhverfi fyrirtækja. Þannig hefur 51 fyrirtæki í flokki stórra fyrirtækja fallið út af lista í ár, og þá helst vegna neikvæðs rekstrarhagnaðar (12%) og neikvæðrar ársniðurstöðu (15%), en 4% detta út vegna lækkunar á lánshæfismati og 2% skiluðu ekki ársreikningi í tíma. Um leið koma inn á listann 124 ný fyrirtæki, þar af 48 stór. Efstu fimm nýju fyrirtækin eru Landsnet, Útgerðarfélag Reykjavíkur, Búseti, FISK-Seafood og Þorbjörn.

Creditinfo hefur jafnframt fylgst með þróun á kynjahlutfalli æðstu stjórnenda fyrirtækjanna, í stjórnum og framkvæmdastjórnum þeirra. Sé miðað við listann eins og hann er í dag og í lok árs síðustu ár er litla hreyfingu að sjá á milli ára. Hlutfall kvenna í framkvæmdastjórn fyrirtækja er óbreytt á milli ára 11,6% og þá hefur hlutfall kvenna í stjórnum Framúrskarandi fyrirtækja verið nokkuð stöðugt síðustu fjögur ár, 23 til 24%, en var fyrstu fimm ár listans, fyrir árin 2009 til 2013, 17 til 19%. Rétt er þó að árétta að hlutfallið endurspeglar samsetningu listans á hverju ári, en hún getur verið nokkuð breytileg milli ára.