PEP-upplýsingar

Stjórnmálaleg tengsl mín

Creditinfo heldur utan um lista yfir einstaklinga sem teljast hafa stjórnmálaleg tengsl með vísan til laga nr. 140/2018 um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Á listann eru skráðir einstakingar sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu ásamt nánustu fjölskyldu og samstarfsmönnum.

Aðilar sem teljast hafa stjórnmálaleg tengsl geta skoðað sínar upplýsingar á þjónustuvefnum Mitt Creditinfo.




Hvað er grunnur um stjórnmálaleg tengsl og hvers vegna er hann til?

Á listann eru skráðir einstaklingar sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu ásamt nánustu fjölskyldu þeirra og samstarfsmönnum. Markmið Creditinfo með vinnslu listans er að gera aðgengilegar þær upplýsingar sem tilkynningaskyldum aðilum ber að afla samkvæmt lögum um peningaþvætti. Jafnframt viljum við tryggja að einstaklingar sem skráðir eru í grunninn hafi aðgang að upplýsingunum og séu meðvitaðir um stöðu sína.


Hvaðan koma upplýsingarnar?

Upplýsinga um aðila með stjórnmálaleg tengsl er aflað m.a. frá Þjóðskrá Íslands, af opinberum vefsíðum, úr fjölmiðlum og hluthafagrunni Creditinfo. Einstaklingar sem fara á listann fá sent bréf þar sem þeim er tilkynnt um skráninguna og hafa þá 14 daga til að gera athugasemdir. Ef aðili hættir starfi, helst viðkomandi á listanum, auk nánustu samstarfsmanna og fjölskyldu í 18 mánuði.


Get ég nálgast gögn um mig?

Allir einstaklingar sem skráðir eru í grunninn fá senda tilkynningu um skráninguna. Á þjónustuvefnum Mitt Creditinfo má svo nálgast yfirlit yfir þær upplýsingar sem eru skráðar, koma á framfæri athugsemdum um skráninguna og uppfæra upplýsingarnar.


Hverjir mega skoða mín gögn?

Upplýsingar af listanum eru aðeins aðgengilegar tilkynningarskyldum aðilum, s.s. fjármálafyrirtækjum, endurskoðendum, lögmönnum, fasteignasölum og öðrum lögaðilum sem skylt er lögum samkvæmt að afla upplýsinganna.



Lög um peningaþvætti

Núverandi lög um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eru lög, nr. 140 frá árinu 2018. Markmið þeirra er að skylda aðila sem stunda starfsemi er kann að verða notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka til að þekkja deili á viðskiptamönnum sínum og starfsemi þeirra. Í lögunum er hugtakið einstaklingur í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla jafnframt skilgreint, en til þess hóps teljast einstaklingar, innlendir og erlendir, sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu, ásamt nánustu fjölskyldu þeirra og nánum samstarfsmönnum. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands heldur úti lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa.