Miðvikudaginn 4. febrúar fögnuðu við þeim 577 fyrirtækjum sem hlutu viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki 2014. Þetta er fimmta árið sem viðurkenningin er veitt og af því tilefni var haldin ráðstefna um framúrskarandi lánsviðskipti. „Leiðin að upplýstum ákvörðunum“ var yfirskrift ráðstefnunnar en á henni var fjallað um hvernig fyrirtæki geta nýtt sér góð gögn til þess að lágmarka afskriftir og auka viðskipti með því að umbuna fjárhagslega ábyrgum viðskiptavinum.