Áreiðanleikamat (KYC)

Áreiðanleikamat Creditinfo styður fyrirtæki við framkvæmd áreiðanleika-könnunar með því að sameina gagnaöflun, áhættumat og skjalfestingu í einu samræmdu ferli. Upplýsingar sem nauðsynlegar eru við mat á áreiðanleika viðskiptamanna eru settar fram á skýran og aðgengilegan hátt, þannig að auðvelt er að fá yfirsýn, meta áhættu og sýna fram á framkvæmd könnunarinnar.

Lausnin styður við kröfur laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (nr. 140/2018) og laga um frystingu fjármuna og þvingunarlista (nr. 64/2019).

Hvað felur í sér að kanna áreiðanleika viðskiptamanna?

Áreiðanleikamat Creditinfo er kerfi til að halda utan um gagnasöfnun en veitir einnig góða yfirsýn og rekjanleika til að auðvelt sé að sýna fram á framkvæmd ef eftirlitsaðili bankar upp á. Tilkynningarskyldir aðilar þurfa að geta svarað grundvallarspurningum um viðskiptamenn sína eins og:

- Hver stendur raunverulega á bak við félagið?

- Gefur orðspor viðskiptamanns tilefni til nánari skoðunar?

- Eru tengsl við áhættusama aðila eða ríki?

- Hvernig var áhættumat unnið – og er hægt að sýna fram á það?

Creditinfo aðstoðar aðila við að svara þessum spurningum, m.a. með upplýsingum um

  • Gildandi skráningu fyrirtækis, fyrri skráningar og ársreikninga
  • Stjórnmálaleg tengsl einstaklings (PEP)
  • Stöðu viðskiptamanns gagnvart alþjóðlegum þvingunarlistum (Sanctions)
  • Tengslum við áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki
  • Félagaþátttöku einstaklings
  • Spurningalista sem nær utan um áhættutengsl, uppruna fjármuna og tilgang viðskipta
  • Staðfestingu á viðurkenndum persónuskilríkjum
  • Orðspori viðskiptamanns - dómsmál og AML fjölmiðlaupplýsingar ná 10 ár aftur í tímann
  • Raunverulega eigendur og flækjustig eignarhalds
  • Endanlega eigendur og þekkta hluthafar - veitir dýpri innsýn í eignarhald fyrirtækja

Til að auðvelda yfirsýn er hægt að fylgjast með stöðu áreiðanleikamata á forsíðu kerfisins, þar eru upplýsingar um

  • Framkvæmd áreiðanleikamöt
  • Stöðu áreiðanleikamats - er mat opið eða lokið
  • Skráðan áhættuflokk
  • Hvort búið sé að senda spurningalista og hvort honum hafi verið svarað
  • Hver stofnaði matið og hvenær

Einnig er hægt að setja lögaðila í Fyrirtækjavakt svo hægt sé að fylgjast með breytingar á högum þess fyrirtækis líkt og breytingar á eignarhaldi, prókúru o.fl.

Upptaka frá rafrænum fundi Creditinfo um áreiðanleikamat

Umfjöllunarefni fundarins:

  • Hverjar eru skyldur tilkynningarskyldra aðila?
  • Hvaða gagna þurfa tilkynningarskyldir aðilar að afla?
  • Yfirlit yfir Áreiðanleikamat Creditinfo
  • Framtíðarsýn í vöruframboði Creditinfo

Rekjanleiki og yfirsýn

Upplýsingar sem styðja við framkvæmd áreiðanleikakönnunar birtast á einum stað í skýru og notendavænu viðmóti. Samræmt ferli þar sem svör úr spurningalista, gögn og athugasemdir eru vistuð og auðvelt er að sýna fram á framkvæmd.

Fyrirtækjagögn

Upplýsingar úr fyrirtækjaskrá ásamt breytingasögu og ársreikningum eru aðgengilegar á einum stað. Þær geta varpað ljósi á hvort tekjur, eignir og skuldbindingar séu í samræmi við eðli og umfang starfsemi og hvort breytingar gefi tilefni til nánari skoðunar.

Áhættutengsl og orðspor

Stjórnmálaleg tengsl, alþjóðlegir þvingunarlistar, félagaþáttaka, tengsl við áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki, styðja við mat á áhættu hjá viðskiptamönnum, ásamt orðsporsáhættu, þar sem leitað er í safni yfir dómsmál og AML-tengda fjölmiðlaumfjöllun 10 ár aftur í tímann.

Eignarhald og tengsl

Raunverulegir eigendur og flækjustig eignarhalds segja til um hvort eignarhald sé einfalt eða flóknara í uppbyggingu. Í því tilfelli er hægt að sækja gögn um þekkta hluthafa og endanlega eigendur, sem veita dýpri innsýn í eignarhald fyrirtækja ásamt myndrænni framsetningu á beinum og óbeinum eignatengslum.

Algengar spurningar

No items found.

Notkunartilfelli

Umsagnir viðskiptavina

„Áreiðanleikamat Creditinfo hefur einfaldað okkar verklag við framkvæmd áhættumats á okkar viðskiptavinum og aukið skilvirkni til muna.“

Sara Henný Arnbjörnsdóttir
endurskoðandi og meðeigandi hjá PwC

„Eftir að við fórum að nota Áreiðanleikaskýrslu Creditinfo þurfum við að ónáða viðskiptavini mun minna vegna þess að nauðsynlegar upplýsingar eru þar á einum stað. Við náum þá að minnka hópinn af viðskiptavinum sem við þurfum að kanna nánar og erum með uppfærðar upplýsingar um flesta viðskiptavini okkar hverju sinni.“

Silja Valdemarsdóttir
forstöðumaður á fyrirtækjasviði Arion banka

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.