Í sex ár hefur Creditinfo veitt hvatningarverðlaun fyrir nýsköpun og sjálfbærni þeim fyrirtækjum sem þykja skara fram úr á þeim sviðum í hópi Framúrskarandi fyrirtækja. Málaflokkarnir eru okkur mikilvægir og við trúum því að öll Framúrskarandi fyrirtæki þurfi að huga að bæði nýsköpun og sjálfbærni með markvissum hætti. Hvatningarverðlaununum er því ætlað að draga fram fyrirmyndirnar sem geta verið öðrum hvatning á þessum sviðum. Verðlaunin eru veitt á sama tíma og listinn er gerður opinber ár hvert.
Árið 2023 hlaut Héðinn hf. hvatningarverðlaun Creditinfo fyrir framúrskarandi nýsköpun.
Í dómnefnd sátu: Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak, Guðmundur Hafsteinsson, fjárfestir og stjórnarformaður Icelandair Group og Ásthildur Otharsdóttir, meðeigandi og fjárfestingastjóri hjá Frumtak Ventures.
Héðinn hf er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni og sinnir fjölbreyttri þjónustu við sjávarútveg, stóriðjufyrirtæki og orkuframleiðendur innanlands og utan. Félagið var stofnað árið 1922 og fagnaði því 100 ára afmæli í fyrra. Í umsögn dómnefndar kom fram að Héðinn hf. hafi frá upphafi stundað nýsköpun af krafti. „Sem dæmi má nefna að Héðinn reisti fyrstu íslensku síldarverksmiðjuna á Seyðisfirði árið 1936 og árið 1951 þróaði fyrirtækið og framleiddi fyrstu íslensku heimilisþvottavélina, Mjöll, í samvinnu við Rafha. Héðinn tók þátt í að þróa og smíða nýja og nútímalega sorpeyðingarstöð á Suðurnesjum sem var opnuð árið 2004.“
Árið 2023 hlaut Össur hf. verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sviði sjálfbærni.
Í dómefnd sátu Þórólfur Nielsen, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Landsvirkjun, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir forseti samfélagssviðs hjá Háskólanum í Reykjavík, Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS og Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og forseti UU.
Í umsögn dómnefndar kom fram að Össur hafi um árabil látið sig sjálbærni varða og er í fararbroddi, hvort sem litið er til umhverfismála, samfélagsmála eða stjórnarhátta.
„Ég er mjög ánægður með þessa vottun og þá möguleika sem hún gefur. Ég hef aldrei auglýst mitt fyrirtæki og hef engan áhuga á að vera áberandi, en það sem þetta hefur gefið mér er að fyrirtækið hefur notið talsvert meiri trúverðugleika í samskiptum við nýja viðskiptamenn og sérstaklega samningum við nýja birgja.Traust hvað varðar greiðslukjör hefur snarstyrkst við þessa viðurkenningu.Takk fyrir mig.“