Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Creditinfo hefur að geyma stærsta gagnagrunn fyrirtækjaupplýsinga á Íslandi. Á þeim grundvelli nálgast fjöldinn allur af viðskiptavinum Creditinfo upplýsingar til að taka markvissari ákvarðanir í viðskiptum. Hægt er að panta markhópalista yfir fyrirtæki á tilteknum landsvæðum, eftir atvinnugreinum eða stærð sem auðvelda þér að ná athygli réttu aðilanna.

Listinn inniheldur upplýsingar um Framúrskarandi fyrirtæki 2025 sem er unninn upp úr ársreikningum 2022 til 2024.
Verð:
115.000 kr. án vsk.
Í boði er að fá markhópalista sem er afmarkaður við tiltekna atvinnnugrein og/eða landshluta. Listarnir innihalda eftirfarandi grunnupplýsingar en einnig er hægt að bæta við ýmsum öðrum.
Verð:
Frá 38.500 kr. án vsk.
Í boði er að fá markhópalista yfir stærstu fyrirtæki landsins sem er afmarkaður eftir veltu, eignum eða starfsmannafjölda.
Verð:
Frá 40.000 kr. án vsk.
Creditinfo er umboðsaðili fyrir Dun & Bradstreet Inc auk fleiri aðila á sviði fjárhags- og markaðsupplýsinga. Það gerir okkur kleift að bjóða þér markhópalista fyrir erlend fyrirtæki byggðan á upplýsingum um t.d. staðsetningu, atvinnuflokk, fjölda starfsmanna og lykiltölum úr ársreikningum.



„Markhópalistarnir frá Creditinfo hafa reynst okkur afar vel í sölu- og markaðsstarfi. Það var fljótlegt og einfalt að fá markhópalistana í hendurnar og allar upplýsingar voru skýrt settar fram.“
