Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Við veitum sérhæfða ráðgjöf á sviði áhættustýringar, greiningar og sjálfbærni og styðjum þannig fyrirtæki í að taka upplýstar ákvarðanir sem skapa aukið virði.

Helstu ráðgjafaverkefni fyrir viðskiptavini:

Dr. Gunnar Gunnarsson,
Forstöðumaður, Greining og ráðgjöf
Gunnar er með doktorspróf í stærðfræði frá Kaliforníuháskóla í Santa Barbara (UCSB), M.A. gráðu í stærðfræði frá sama skóla og B.Sc. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Gunnar hefur starfað um árabil á sviði áhættustýringar, m.a. innan Íslandsbanka í rúm 6 ár og sem meðlimur í áhættunefnd stjórnar Íbúðalánasjóðs og Teya. Á árunum 2012 - 2014 var hann deildarstjóri innan áhættustýringar hjá Íslandsbanka, vann svo sjálfstætt sem ráðgjafi í áhættustýringu til 2016 en hefur síðan stýrt Greiningu og ráðgjöf hjá Creditinfo og ber þar m.a. ábyrgð á lánshæfismati einstaklinga og fyrirtækja sem og öðrum greiningum félagsins.
Helstu ráðgjafaverkefni fyrir viðskiptavini:
.jpg)
Dr. Reynir Smári Atlason,
Forstöðumaður, Viðskiptaþróun og sjálfbærni
Reynir lauk doktorsprófi í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands árið 2015, M.Sc. gráðu í Umhverfis- og auðlindafræði frá sama skóla og BA próf í iðnhönnun frá Curtin University of Technology í Perth Vestur Ástralíu. Hann starfaði sem lektor við verkfræðideild Háskólans í Suður-Danmörku (SDU) frá 2015 til 2019. Á undanförnum árum hefur hann birt fjölda ritrýndra greina og bókakafla á sviði umhverfisvísinda og sjálfbærni. Reynir leiðir sjálfbærnivegferð Creditinfo group á heimsvísu.

