
Framúrskarandi árangur er langhlaup
Í 17 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri. Vottun Framúrskarandi fyrirtækja er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því eftirsóknarvert að skara fram úr.
Panta vottun
Afreksfólk atvinnulífsins
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Aðeins afreksfólk atvinnulífsins stenst þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja og þær gefa vísbendingar um að þau séu líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur.
Skoða skilyrði →

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Þann 28. október 2026 afhenti Creditinfo Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir rekstrarárið 2025 við hátíðlega athöfn í Hörpu.
Sjá nánar →Hvatningarverðlaun fyrir sjálfbærni
Við trúum því að Framúrskarandi fyrirtæki þurfi að huga að sjálfbærni með markvissum hætti. Hvatningarverðlaununum fyrir sjálfbærni er ætlað að draga fram fyrirmyndirnar sem geta verið öðrum hvatning á þessu sviði. Verðlaunin eru veitt á sama tíma og listinn er gerður opinber ár hvert.
Sjá meira →




Skilyrðin
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárin 2023–2025
- Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2023–2025
- Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2023–2025
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2023–2025
- Hefur skilað nýjasta ársreikningi á réttum tíma
- Ársreikningi skilað til RSK síðustu 3 reikningsár
- Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Eignir a.m.k. 120 milljónir króna reikningsárin 2023–2025
- Fyrirtæki með a.m.k. 2 milljarða króna í rekstrartekjur þurfa að svara sjálfbærnispurningum
- Fyrirtæki sem falla undir lög um kynjakvóta þurfa að uppfylla lög um kynjahlutföll í aðalstjórn (nýtt skilyrði)
Pantaðu vottunina
og þú færð

Viðurkenningarskjal
Innrammað viðurkenningarskjal sem notað er sem vitnisburður um framúrskarandi árangur. Einnig kemur viðurkenningin á ensku og í tölvutæku formi.
Sýnishorn ›
Staðfestingarskjal
Staðfestingarskjal um framúrskarandi árangur í rekstri. Skjalið sýnir forsendur fyrir valinu og er mikið notað í samskiptum við erlenda viðskiptavini og birgja.
Sýnishorn ›
Samanburðarskýrsla
Við berum saman þitt fyrirtæki við þína atvinnugrein. Í skýrslunni koma fram lykiltölur úr ársreikningum fyrirtækja. Skýrsluna er hægt að nota til að bera saman fyrirtækið við önnur fyrirtæki.
Sýnishorn ›Listi yfir Framúrskarandi fyrirtæki
Listi yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026 ásamt lykiltölum í Excel-skjali.

Merking á ja.is
Merking við skráningu fyrirtækisins á ja.is sem sýnir stöðu þess sem Framúrskarandi fyrirtæki.
Sýnishorn ›• Viðurkenningarskjal í ramma og pdf
• Listi yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026
• Staðfestingarskjal á íslensku (pdf skjal)
• Staðfestingarskjal á ensku (pdf skjal)
• Samanburðarskýrsla við atvinnugrein
• Leyfi til að nota merkið í kynningarefni (jpeg, png)
• Merkingar í skýrslum Creditinfo
• Merking við skráningu fyrirtækis hjá ja.is
Merking á Vísi
Á Vísi er sérstakur vefur helgaður Framúrskarandi fyrirtækjum. Þar er að finna nýjasta listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki og hægt að lesa viðtöl við forsvarsmenn þeirra ásamt áhugaverðum fróðleik um fyrirtækin.
Framúrskarandi fyrirtækjum býðst að bæta við sérstakri merkingu á vef Vísis. Merkingin verður sýnileg á forsíðu visir.is í kringum viðburðinn 28. október og í 11 mánuði á sérvefnum.
VERÐ
26.900 kr.
án vsk.
til viðbótar við vottunina
Hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni
Nói Síríus
Hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni 2026 hlaut Nói Síríus, fyrir markvisst og árangursríkt starf að félagslegri sjálfbærni með sérstaka áherslu á inngildingu starfsfólks með frábrugðna starfsorku á vinnumarkaði.
Einstaklingar með frábrugðna starfsorku mæta enn verulegum hindrunum á vinnumarkaði og hafa takmörkuð tækifæri til launaðrar vinnu. Nói Síríus hefur brugðist við þessari áskorun með því að skapa varanleg störf sem henta þessum hópi þar sem starfsfólk með frábrugðna starfsorku tekur virkan þátt í daglegri framleiðslu fyrirtækisins.
Styrkur nálgunarinnar felst í því að vinnustaðurinn og verklagið er aðlagað að þörfum hvers einstaklings. Fyrirtækið réði til sín menntaðan þroskaþjálfa í nýtt hlutverk inngildandi verkstjóra til að leiða vegferð atvinnu með stuðningi innan fyrirtækisins. Verkefnið snýst um að skapa raunveruleg og varanleg atvinnutækifæri fyrir fólk með frábrugðna starfsorku innan hefðbundinnar framleiðslu.
Það sem er nýstárlegt við nálgunina er að vinnustaðurinn sjálfur er aðlagaður að fólkinu, fremur en öfugt. Þróaðar hafa verið einfaldar og útsjónasamar lausnir sem gera starfsfólki kleift að takast á við verkefni af öryggi og auknu sjálfstæði. Í stað staðlaðrar þjálfunar var þróað verklag sem var sniðið að hverjum einstaklingi. Árangurinn er áþreifanlegur. Fimm einstaklingar starfa nú í verkefninu og stjórnendur sækjast eftir að fá þá til að starfa í sínum teymum.
.jpg)
Áhrifin ná þó lengra þar sem einföld og sjónræn verkfæri nýtast öllum starfsmönnum, samskipti og starfsánægja hafa aukist og fjölbreytileiki er orðinn sýnilegur styrkleiki vinnustaðarmenningar vinnustaðarins.
Í umsögn dómnefndar segir að verkefni Nóa Síríusar sýnir hvernig faglegur stuðningur, aðlögun verkefna og breytt viðhorf geta opnað fólki leið inn á vinnumarkaðinn. Nálgunin er öðrum fyrirtækjum og starfsgreinum til fyrirmyndar og sýnir að inngilding er ekki kostnaðarsöm sérlausn heldur fjárfesting í fólki sem skilar sér í aukinni framleiðni, minna álagi og sterkari vinnustaðamenningu.
Hvatningarverðlaunin voru veitt samhliða birtingu lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026. Dómnefnd vann úr lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem sýndu fram á skýra stefnu um samfélagsábyrgð, sjálfbærni, kynjajafnrétti og réttindi starfsfólks. Verðlaunin eru unnin í samstarfi við Festu - miðstöð um sjálfbærni.
Í dómnefnd sátu Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður dómnefndar, Gunnlaugur Bjarki Snædal og Júlía Huang