Með yfirlýsingu þessari er Creditinfo Lánstrausti hf., kt. 710197-2109, Borgartúni 25, 105 Reykjavík (hér eftir Creditinfo), veitt heimild sem ábyrgðaraðila lánshæfismatsins til að vinna persónuupplýsingar með þeim hætti sem lýst er hér að neðan.
Samkvæmt 4. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 606/2023 um vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust, getur Creditinfo, með þínu upplýsta samþykki, notað viðbótarupplýsingar í þeim tilgangi að framkvæma áreiðanlegt lánshæfismat og miðla niðurstöðu þess til þeirra viðskiptavina Creditinfo sem heimild hafa til að sækja lánshæfismat þitt. Notkun upplýsinganna getur eftir atvikum haft áhrif á lánshæfismat þitt, sem getur leitt til hækkunar eða lækkunar á því.
Með þessu samþykki veitir þú Creditinfo heimild til að fá aðgang að og vinna ákveðnar upplýsingar af þeim bankareikningum sem þú velur. Aðgangur að þessum upplýsingum fer fram í samræmi við ákvæði tilskipunar (ESB) 2015/2366 (PSD2) um greiðsluþjónustu. Þær tegundir reikningsupplýsinga sem Creditinfo mun sækja og nota eru:
Þessar upplýsingar verða notaðar sem breytur í lánshæfislíkan Creditinfo til að reikna út þitt lánshæfismat.
Lánshæfismatið sem byggir á þessum reikningsupplýsingum verður miðlað til viðskiptavina Creditinfo, svo sem lánveitenda, sem hafa gert samning við Creditinfo og hafa lögmætan tilgang til að sækja lánshæfismat þitt. Upplýsingum um nákvæmar forsendur lánshæfismatsins eða einstakar færslur er ekki miðlað til viðskiptavina, heldur einungis upplýsingum um að matið byggi á viðbótarupplýsingum.
Reikningsupplýsingar sem safnað er á grundvelli samþykkis þessa verða varðveittar í 2 ár eða þar til samþykki er afturkallað, hvort sem gerist fyrr.
Samþykki þetta verður vistað í þeim tilgangi að sýna fram á að samþykki hafi sannarlega verið veitt og hvenær. Samþykkið nær ekki til annarrar vinnslu en gerð lánshæfismats. Lánshæfismat sem byggir á fjárhagsupplýsingum er ekki miðlað til þriðja ríkis án þess að fullnægjandi vernd liggi fyrir. Samþykki fellur úr gildi þegar það er afturkallað.
Þú getur afturkallað samþykki þitt hvenær sem er. Afturköllunin er jafn einföld og veiting samþykkisins. Til að afturkalla samþykki, vinsamlegast farðu á inn á aðganginn þinn og veldu afturkalla samþykki, hér er hlekkur á síðuna https://mitt.creditinfo.is/settings/loyalty
Við afturköllun fellur samþykkið úr gildi og Creditinfo mun ekki lengur fá aðgang að nýjum reikningsupplýsingum á grundvelli samþykkisins. Þeim reikningsupplýsingum sem þegar hefur verið aflað á grundvelli samþykkisins verður eytt. Lánshæfismat þitt eftir afturköllun mun eingöngu byggja á þeim upplýsingum sem Creditinfo er heimilt að nota skv. 3. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 606/2023 ásamt öðrum upplýsingum sem þú kannt að hafa veitt sérstakt upplýst samþykki fyrir.