
Hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni, voru afhent við hátíðlega athöfn Framúrskarandi fyrirtækja 2026 í Hörpu í gær, 28. október.
Viðurkenninguna í ár hlaut Nói Siríus fyrir markvisst og árangursríkt starf að félagslegri sjálfbærni með sérstaka áherslu á inngildingu starfsfólks með rfrábrugðna starfsorku á vinnumarkaði.
Vinnustaðurinn aðlagaður að starfsfólkinu
Einstaklingar með frábrugðna starfsorku mæta enn verulegum hindrunum á vinnumarkaði og hafa takmörkuð tækifæri til launaðrar vinnu. Nói Síríus hefur brugðist við þessari áskorun með því að skapa varanleg störf sem henta þessum hópi þar sem starfsfólk með frábrugðna starfsorku tekur virkan þátt í daglegri framleiðslu fyrirtækisins.
Styrkur nálgunarinnar felst í því að vinnustaðurinn og verklagið er aðlagað að þörfum hvers einstaklings. Fyrirtækið réði til sín menntaðan þroskaþjálfa í nýtt hlutverk inngildandi verkstjóra til að leiða vegferð atvinnu með stuðningi innan fyrirtækisins. Verkefnið snýst um að skapa raunveruleg og varanleg atvinnutækifæri fyrir fólk með frábrugðna starfsorku innan hefðbundinnar framleiðslu. Þróaðar hafa verið einfaldar og útsjónasamar lausnir sem gera starfsfólki kleift að takast á við verkefni af öryggi og auknu sjálfstæði.
Verkefni Nóa Síríusar sýnir hvernig faglegur stuðningur, aðlögun verkefna og breytt viðhorf geta opnað fólki leið inn á vinnumarkaðinn. Nálgunin er öðrum fyrirtækjum og starfsgreinum til fyrirmyndar og sýnir að inngilding er ekki kostnaðarsöm sérlausn heldur fjárfesting í fólki sem skilar sér í aukinni framleiðni, minna álagi og sterkari vinnustaðamenningu.
Hvatningarverðlaunin eru veitt samhliða birtingu lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki, en alls hlutu 1.217 fyrirtæki þá viðurkenningu í ár. Við val á verðlaunahafa vann dómnefnd úr hópi Framúrskarandi fyrirtækja sem sýndu fram á skýra stefnu í málefnum samfélagsábyrgðar, sjálfbærni, kynjajafnréttis og réttinda starfsfólks.
Í dómnefnd sátu Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður dómnefndar, Gunnlaugur Bjarki Snædal og Júlía Huang.
