Framúrskarandi fyritæki
Framúrskarandi
Fréttir af Creditinfo
Fréttir

1.217 Framúrskarandi fyrirtæki 2026

29.10.2026

Creditinfo hélt árlega hátíð Framúrskarandi fyrirtækja í Hörpu í gær, miðvikudaginn 28. október, þar sem framúrskarandi árangri íslenskra fyrirtækja var fagnað.

Alls hlutu1.217 fyrirtæki viðurkenninguna í ár.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, forstjóri Creditinfo, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og sérstakur heiðursgestur hátíðarinnar, ávörpuðu gesti og fjölluðu um mikilvægi öflugs atvinnulífs fyrir íslenskt samfélag.

Á hátíðinni voru jafnframt veitt sérstök hvatningarverðlaun í samstarfi við Festu- miðstöð um sjálfbærni, fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni. Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður dómnefndar, afhenti verðlaunin en að þessu sinni hlaut Nói Síríus viðurkenninguna fyrir markvisst og árangursríkt starf að félagslegri sjálfbærni með sérstaka áherslu á inngildingu starfsfólks með frábrugðna starfsorku á vinnumarkaði.  

Með viðurkenningunni Framúrskarandi fyrirtæki vill Creditinfo vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem sýna fram á framúrskarandi rekstur og traustan fjárhagslegan grundvöll og hvetja til áframhaldandi árangurs í íslensku atvinnulífi.

Upptöku af viðburðinum má nálgast hér

‍

Deila efni:
Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti

Smelltu til að skrá þig