
Kuratech og Creditinfo hafa undirritaðsamstarfssamning sem felur í sér aðgengi að gögnum og upplýsingum úrgagnagrunnum Creditinfo í lausnum Kuratech.
Kuratech eríslenskt tæknifyrirtæki sem þróar lausnir fyrir skiptastjóra þrotabúa.Hugbúnaðarlausn Kuratech hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot íaðdraganda gjaldþrotaskipta auk þess að sjálfvirknivæða margvíslega handavinnuí gjaldþrotaskiptum. Þar sem skiptastjórar hafa takmarkaðan tíma til aðrannsaka flókin þrotabú í þaula, notar Kuratech nýjustu tækni í gagnagreininguog gervigreind til að rýna í fjárhagsupplýsingar, flagga grunsamleg viðskiptiog finna verðmæti sem annars færu forgörðum, allt á brotabroti af þeim tíma semhandvirk vinna tekur.
Kristján Óli,framkvæmdastjóri Kuratech, er ánægður með samstarfið og segir það mikilvæganlið í framtíðaráformum félagsins: „Samstarf Creditinfo og Kuratech styrkirlausnina enn frekar og gerir skiptastjórum kleift að vinna hraðar og með meiriinnsýn. Auk þess greiðir Creditinfo leið Kuratech á erlenda markaði með aðgengiað sambærilegum gögnum í fjölmörgum ríkjum utan Íslands. Þetta samstarf er þvímikilvægur liður í því að gera lausn Kuratech að alþjóðlegri vöru.“
Hreinn Bergs,viðskiptastjóri hjá Creditinfo, segir það sérstakt ánægjuefni að geta stutt við nýsköpun áÍslandi: „Það gleður okkur hjá Creditinfo að geta stutt við Kuratech og þáöflugu nýsköpun sem félagið stendur að. Við höfum fulla trú á því aðgagnalindir okkar og lausnir muni nýtast vel við að einfalda vinnslu þrotabúaog styðja við áframhaldandi vöxt félagsins. Samstarfið hefur verið afaránægjulegt og við hlökkum til framhaldsins.“
