Creditinfo þróar rafrænt ferli í afgreiðslu trygginga í samstarfi við Tryggja

Staðfest leigutrygging á örfáum mínútum hjá tryggja.is með lausn Creditinfo

Creditinfo hefur þróað og innleitt sjálfvirka rafræna lausn á umsóknum um leigutryggingar í samstarfi við vátryggingamiðlunina Tryggja. Um er að ræða sjálfvirkt ferli við mat á umsækjendum leigutrygginga sem gerir Tryggja kleift að ganga frá afgreiðslu trygginga í rauntíma. 

Tryggja hefur boðið einstaklingum og lögaðilum upp á leigutryggingu sem kallast Leiguvernd en sú trygging hefur leyst af hólmi hinar hefðbundnu bankaábyrgðir eða fyrirframgreiðslur. Með þessari nýju lausn verður allt umsóknarferlið sjálfvirkt. Þannig geta leigjendur fengið staðfesta leigutryggingu á örfáum mínútum í stað nokkurra daga áður.  

“Lausnin sem við þróuðum er algjör bylting fyrir leigjendur á markaði. Nú geta þeir nálgast staðfestingu á ábyrgð fyrir leigunni um leið og þeir skoða húsnæðið til dæmis. Þetta fyrirkomulag gefur Tryggja visst forskot á markaði varðandi vinnslu umsókna frá áhættumati til útgáfu tryggingar. Það er ljóst að sjálfvirknivæðing í þjónustu fyrirtækja er sífellt að aukast og það er mikilvægt fyrir Creditinfo að geta smíðað svona sérlausnir,” segir Leifur Grétarsson viðskiptastjóri hjá Creditinfo.

 „Það er virkilega ánægjulegt að geta stytt afgreiðslutíma trygginga hjá okkur á þennan hátt. Við erum að mæta þörfum viðskiptavina og markaðarins með þessari sjálfvirknivæðingu í samstarfi við  Creditinfo. Það skiptir sköpum m.a. fyrir tilvonandi leigjendur að fá Leiguvernd staðfesta frá okkur hratt og örugglega. 
Ennfremur gefst þeim einstaklingum sem eru á vanskilaskrá kost á því að skrá ábyrgðaraðila á umsóknina um Leiguvernd. Umsóknin er þannig metin út frá ábyrgðaraðilanum. Oft eru þetta tímabundnar ráðstafanir og leigjandinn getur síðar breytt skráningunni á ábyrgðinn,“ segir Baldvin Samúelsson stjórnarformaður og einn eigenda Tryggja