Sigrún Ragna sest í stjórn Creditinfo

Sigrún Ragna Ólafsdóttir hefur tekið sæti í stjórn Creditinfo Group í stað Hákons Stefánssonar sem sat tímabundið í stjórninni. Sigrún Ragna tekur jafnframt sæti í stjórn dótturfélags Creditinfo Group, Creditinfo Lánstrausts, í stað Reynis Grétarssonar forstjóra Creditinfo Group. Stjórnir félaganna eru að öðru leyti óbreyttar.

Sigrún Ragna var forstjóri VÍS á árunum 2011-2016. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandsbanka frá árinu 2008 og þar á undan hjá Glitni. Sigrún var einn af eigendum Deloitte hf., þar starfaði hún um árabil og gegndi jafnframt stjórnarformennsku í félaginu. Sigrún útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 1987 með cand.oecon próf af endurskoðunarsviði og hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 1990. Sigrún útskrifaðist með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007.

„Ég er mjög ánægður með að Sigrún Ragna hafi verið tilbúin að ganga til liðs við Creditinfo.  Hún er gríðarlega öflugur stjórnandi og leiðtogi sem kemur að borðinu með þá þekkingu og reynslu sem okkur vantaði.  Félagið er í örum vexti en í ár erum við að vaxa um u.þ.b. 30%. Það er þörf fyrir aga og gott skipulag í stjórnun og þar kemur Sigrún meðal annars sterk inn.  Ég hlakka til að vinna með henni að áframhaldandi vexti og verðmætasköpun hjá félaginu,“ segir Reynir Grétarsson, forstjóri Creditinfo Group.

„Það er afar ánægjulegt að geta tekið þátt í áframhaldandi uppbyggingu Creditinfo erlendis og hér á landi. Grunnstoðir félagsins eru traustar og það eru jafnframt heilmikil tækifæri fyrir þróun og nýsköpun hjá félaginu, framtíðin er því björt fyrir Creditinfo,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir.

Um Creditinfo

Creditinfo var stofnað árið 1997 og er með starfsemi víðsvegar um heim. Öll þjónusta Creditinfo er í samræmi við tilskipanir Evrópusambandsins (95/46/EB) um meðferð og útsendingu persónuupplýsinga. Creditinfo hefur verið tilnefnt til þátttöku og verið valið í fjölmörgum útboðum á vegum alþjóðlegra stofnana, þeirra á meðal Alþjóðabankans, IFC og Millenium Challenge Corporation. Stjórnarformaður Creditinfo Group er Nora Kerppola.