Ráðstefna í Morocco

Dagana 20.-21. september stendur Creditinfo Group fyrir alþjóðlegri ráðstefnu í hinni sólríku Marrakech, Morocco, þar sem sérfræðingar munu ræða hinar ýmsu hliðar áhættustýringar ásamt því nýjasta sem er að gerast í FinTech.

Þetta er í þriðja skiptið sem Creditinfo Group stendur fyrir ráðstefnu af þessu tagi og hefur hún verið vel sótt af fulltrúum banka, greiðslumiðlunarfyrirtækja, seðlabanka, lánshæfismatsfyrirtækja og eftirlitsaðila.

Við hvetjum þig til að taka daginn frá og skrá þig hér fyrir neðan til að fá fréttir þegar nánari dagskrá liggur fyrir.

Nánar á http://globalforum.creditinfo.com/