Framúrskarandi fyrirtæki 2013

Creditinfo kynnti þann 13. febrúar 2014 hvaða íslensk félög náðu inn á lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2013.

Creditinfo kynnti þann 13. febrúar 2014 hvaða íslensk félög náðu inn á lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2013. Þetta er fjórða árið í röð sem Creditinfo kynnir niðurstöður í þessu vali fyrirtækisins sem nú þegar hefur öðlast sess sem ein helsta viðurkenning sem veitt er íslenskum fyrirtækjum og hafa mörg þeirra nýtt sér hana til að bæta rekstur sinn og ímynd enn frekar. Þetta árið eru 462 félög á listanum eða um 1,4% af öllum skráðum fyrirtækjum hér á landi.

Veittar voru sérstakar viðurkenningar í þremur flokkum. Þær voru sem hér segir:

Lítil: Eignamiðlunin
Meðalstór: Já
Stór: Samherji

Framúrskarandi fyrirtækjum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin fjögur ár en þau voru 178 árið 2011 þegar viðurkenningin var fyrst veitt (vegna rekstrar 2010), 245 árið 2012 (vegna rekstrar 2011) og 358 í fyrra (vegna rekstrar 2012).

Val Creditinfo byggir á ýmsum þáttum sem varða rekstur og stöðu fyrirtækjanna. Má þar nefna skil á ársreikningum og jákvæða rekstrarniðurstöðu undanfarin þrjú ár, litlar líkur á vanskilum, að eignir séu 80 milljónir eða meira og eiginfjárhlutfall 20% eða hærra á sama tímabili. Þá þurfa félögin að vera í virk samkvæmt skilgreiningu Creditinfo. 

Listinn var kynntur í glæsilegu hófi á Hótel Nordica fimmtudaginn 13. febrúar að viðstöddu fjölmenni en hátt í 600 manns sóttu viðburðinn, fulltrúar á þriðja hundrað fyrirtækja á listanum. Þar ávarpaði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gesti og veitti sérstakar viðurkenningar en jafnframt munu fluttu erindi þau Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri Pfaff og formaður Samtaka verslunar og þjónustu og Hákon Stefánsson framkvæmdastjóri Creditinfo.

Sérstakir samstarfsaðilar Creditinfo vegna Framúrskarandi fyrirtækja 2013 eru: Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, Samtök iðnaðarins, Félag kvenna í atvinnulífinu og Samtök verslunar og þjónustu.

Skoða frekari upplýsingar um Framúrskarandi fyrirtæki.