Störf í boði

Creditinfo leitar eftir reyndum sérfræðingi í hugbúnaðarþróun (Senior Developer) og einnig sérfræðingi í áhættustýringu.

Sérfræðingur í hugbúnaðarþróun mun starfa í teymi okkar sem sér um nýsmíði og þróun á vörum félagins í .NET umhverfi. Unnið er samkvæmt Agile (Scrum) aðferðafræði. Umsóknarfrestur er til 15.júní.

Einnig leitum við að aðila í áhættustýringar- og greiningarteymi Creditinfo sem verður lykilaðili í að auka virði gagnanna okkar. Um er að ræða nýtt starf og viðkomandi aðili mun geta haft áhrif á hvernig starfið þróast.

Nánari upplýsingar