Lára Hannesdóttir nýr forstöðumaður

Lára Hannesdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður Vöru- og verkefnastýringar Creditinfo á Íslandi.

Lára Hannesdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður Vöru- og verkefnastýringar Creditinfo á Íslandi.

 

Lára hóf störf hjá Creditinfo 2017, þá sem vöru- og verkefnastjóri. Áður starfaði hún hjá Símanum sem sérfræðingur í umbótaverkefnum og sem fjárfestingastjóri hjá Thule Investments. Lára er iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistarapróf í iðnaðarverkfræði frá Háskólanum Politécnica de Catalunya.