Hrefna Ösp ráðin framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hún gegndi áður starfi framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum.

„Ég er sérstaklega spennt að ganga til liðs við Creditinfo. Ég hef fylgst með fyrirtækinu allt frá stofnun og verið viðskiptavinur og veit því að hjá Creditinfo starfar mjög öflugur hópur sem veitir framúrskarandi þjónustu með öflugum lausnum. Einnig er spennandi að komast í alþjóðlegt umhverfi en fyrirtækið er með starfsemi í fjórum heimsálfum. Fram undan eru fjölmörg tækifæri til áframhaldandi vaxtar svo sem vegna opnara bankaumhverfis og aukinna krafna um þekkingu á viðskiptavinum og uppruna fjármagns,“ segir Hrefna Ösp.

„Við bjóðum Hrefnu Ösp hjartanlega velkomna til starfa og fögnum því mjög að fá hana til liðs við okkur. Hrefna býr yfir mikilli reynslu og skýrri sýn á virkni fjármálamarkaða sem verður Creditinfo mikill akkur í vegferð fyrirtækisins fram á veginn,“ segir Paul Randall, forstjóri Creditinfo Group.

Hrefna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með löggildingarpróf í verðbréfaviðskiptum. Hún lét af störfum hjá Landsbankanum í haust eftir að hafa verið þar frá árinu 2010. Áður starfaði Hrefna sem sjóðstjóri hjá Arev verðbréfafyrirtæki frá árinu 2007. Þá starfaði hún sem forstöðumaður skráningarsviðs og sérfræðingur á því sviði hjá Kauphöll Íslands frá 1998-2006. Áður gegndi Hrefna starfi forstöðumanns einstaklingsþjónustu hjá Fjárvangi og var starfsmaður á peningamálasviði Seðlabanka Íslands.
Hrefna hefur sömuleiðis setið í stjórnum fjölda fyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis og er jafnframt einn stofnaðila IcelandSIF, óháðs vettvangs fyrir umræðu og fræðslu um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.

Hrefna