COVID-váhrifamat
Creditinfo hefur útbúið COVID-váhrifamat sem er ætlað að meta hugsanlega óvissu vegna COVID-faraldursins í rekstrarumhverfi
fyrirtækja eftir atvinnugreinum. Með því að skoða COVID-váhrifamat í samhengi við lánshæfismat fyrirtækja fæst enn skýrari mynd af
áhættu og óvissu í rekstri fyrirtækja.
Áskrifendur geta nálgast COVID-váhrifamatið þegar þeir fletta upp lánshæfismati fyrirtækja á þjónustuvef Creditinfo, en þar er tekið fram hvort óvissa
í rekstrarumhverfi vegna áhrifa COVID-19 sé: óveruleg, lítil, meðallagi, mikil eða mjög mikil.
Meira um COVID-váhrifamatið á blogg.creditinfo.is