Frétt
12.07.2011 11:24
SCHUFA mun halda hluta af hugbúnaðarlausnum sem smíðaðar voru af Creditinfo Solutions og stefnir að því að styrkja eigin stöðu með áframhaldandi uppbyggingu í Evrópu. SCHUFA mun ennfremur halda áfram að vinna með Creditinfo á hinum ýmsu mörkuðum.Til baka
Creditinfo Group kaupir helstu rekstrareiningar af sameignarfélaginu (Joint Venture) Creditinfo SCHUFA GmbH.
Creditinfo Group hefur keypt allar helstu eignir sameignarfélagsins Creditinfo SCHUFA GmbH og var eigið fé Creditinfo Group notað til að fjármagna kaupin. Um er að ræða starfsemi félagsins í 11 löndum Evrópu sem verður óbreytt undir nafninu Creditinfo International. Stefna fyrirtækisins, nú sem áður, er að veita heildarlausnir á sviði áhættustjórnunar og viðskiptalausna á nýjum og ört vaxandi mörkuðum.
Creditinfo verður áfram opið fyrir nýjum fjárfestingarmöguleikum og góðum samstarfsaðilum í löndum þar sem þörf er á þekkingu og þjónustu fyrirtækisins. Nýverið hóf félagið starfsemi á Jamaíka og undirbýr rekstur í fleiri löndum, meðal annars á Grænhöfðaeyjum.
SCHUFA mun halda hluta af hugbúnaðarlausnum sem smíðaðar voru af Creditinfo Solutions og stefnir að því að styrkja eigin stöðu með áframhaldandi uppbyggingu í Evrópu. SCHUFA mun ennfremur halda áfram að vinna með Creditinfo á hinum ýmsu mörkuðum.