Frétt

20.05.2011 12:15

Rakel Sveinsdóttir hættir hjá Creditinfo Group

Rakel Sveinsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi og varamaður í stjórn Creditinfo Group, hefur látið af störfum fyrir félagið.


Rakel starfaði fyrst sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlavaktarinnar frá 2005 en leiddi síðar sameiningu Lánstrausts og Fjölmiðlavaktarinnar áramótin 2007/2008 og varð framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.  Því starfi sagði hún lausu fyrir um ári síðan  og hætti sem framkvæmdastjóri þann 1. febrúar sl.  Við þessi starfslok tóku við verkefni fyrir Creditinfo Group þar sem skoðaðar voru fjárfestingar á sviði rannsókna og greininga.  Eftir nokkrar umleitanir á þeirri starfsgrein hefur nú verið ákveðið að fresta slíkum hugmyndum ótímabundið.

,,Þetta hefur verið viðburðarríkur og góður tími og forréttindi að vinna við fyrirtæki sem nær að vaxa um meir en 100% á skömmum tíma.  Varkárni tryggði félaginu gott gengi í gegnum bankahrunið og í ljósi þeirrar stöðnunar sem enn einkennir íslenskt atvinnulíf erum við ekki að sjá að stórar fjárfestingar séu vænlegar í augnablikinu.  Ég kveð því félagið með góðum hug og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir hverjar sem þær verða“ segir Rakel en hún starfaði áður lengst af hjá Morgunblaðinu og síðar Stöð 2, varð síðan framkvæmdastjóri sameinaðs Leikfélags Íslands og rak síðar talsetningafyrirtækið Hljóðsetningu sem nú er í eigu Senu. 

Rakel hefur verið áberandi sl ár í ýmsu umbótastarfi í íslensku viðskiptalífi, hvort sem er aukinni hlutdeild kvenna í atvinnulífinu eða góðum stjórnarháttum.  ,,Það þarf enginn að efast um að ég haldi því starfi áfram enda okkar allra hagur að auka heilbrigði í íslensku atvinnulífi.“  Creditinfo Group þakkar Rakel góð störf á liðnum árum.




Til baka
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi