Frétt
Hákon Stefánsson tekur við stöðu framkvæmdastjóra hjá Creditinfo á Íslandi.
Hákon lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og öðlaðist héraðsdómlögmannsréttindi árið 1999. Eftir að hafa starfað sem bæjarlögmaður Akureyrarbæjar starfaði hann sem sviðsstjóri ráðgjafasviðs Intrum á Íslandi á árunum 2002-2006. Hann gegndi starfi framkvæmdastjóra Lánstrausts á árunum 2006-2007 og varð stjórnarformaður Creditinfo þegar Lánstraust og Fjölmiðlavaktin voru sameinuð undir nafni Creditinfo á Íslandi um áramótin 2007-2008. Hákon hóf í kjölfarið störf hjá þýska féalginu Creditinfo Schufa og hefur frá árinu 2009 leitt sölu- og markaðsstarf félagsins sem er með starfsemi í Evrópu, Asíu, Afríku og Austurlöndum nær en hjá félaginu starfa um 400 starfsmenn. Staðgengill Hákonar á Íslandi er Tryggvi Þór Marinósson, fjármálastjóri Creditinfo.
Rakel Sveinsdóttir, sem verið hefur framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi frá því í ársbyrjun 2008, og þar áður framkvæmdastjóri Creditinfo Fjölmiðavaktarinnar frá 2005, er komin til starfa hjá móðurfélaginu Creditinfo Group, ásamt því að setjast í stjórn félagsins.