Frétt
03.01.2011 09:04
Frá og með gildistöku laganna fyrnast kröfur nú á tveimur árum, og gildir það jafnt um kröfur sem var lýst í þrotabúið og um þær kröfur sem ekki var lýst í búið, svo fremi sem þær fyrnast ekki á skemmri tíma. Fyrningartími hefst þegar skiptastjóri hefur lokið skiptum í þrotabúinu. Í flestum tilvikum er skiptum á þrotabúum einstaklinga lokið á innan við sex mánuðum eftir gjaldþrotaúrskurð.
Nýju lögin gera ráð fyrir því að kröfuhafi getið höfðað mál til slita á fyrningu ef hann telur sig geta sýnt fram á sérstaka hagsmuni af því að slíta henni og að líkur megi telja á fullnustu kröfunnar á nýjum fyrningartíma. Gangi slíkur dómur eftir gilda almennar reglur um fyrningu.
Þau skiptalokmál, sem áttu sér stað fyrir gildistöku laganna og hefðu að óbreyttu átt að fyrnast á lengri tíma en tveimur árum, fyrnast nú á tveimur árum frá gildistöku nýju laganna. Séu minna en tvö ár eftir af fyrningartíma, þá gildir sá tími áfram, þ.e. fyrning slíkra mála lengist sem sagt ekki í tvö ár frá gildistöku laga nr. 142/2010.
Skráning skiptaloka á vanskilaskrá tekur viðeigandi breytingum líkt og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
Til baka
Í tengslum við tveggja ára fyrningu krafna í kjölfar gjaldþrotaúrskurðar.
22. desember 2010 tóku gildi lög nr. 142/2010, sem breyta fyrningartíma krafna sem standa á aðila sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota.