Frétt
17.09.2010 17:11
Creditinfo mun hafa sama háttinn á vegna niðurstöðu dóms Hæstaréttar 16. september síðast liðinn og fyrirhuguðu frumvarpi til laga um færslu allra gengisbundinna bíla- og húsnæðislána í íslenskar krónur. Standa vonir til þess að viðbrögðin muni sömuleiðis skila sér í frekari afskráningum vanskilafærslna á næstu vikum.
Þeir einstaklingar sem óska eftir aðstoð Creditinfo við afskráningu færslna á skrá vegna fasteigna- eða bílalána, sem falla undir þá skilgreiningu sem hér um ræðir, er bent á að hafa samband við Umboðsmann lántakenda hjá Creditinfo í síma 550-9600 eða með tölvupósti á netfangið umbodsmadur@creditinfo.is
Til baka
Fækkun vanskilamála í kjölfar dóms Hæstaréttar og væntanlegs frumvarps
Í kjölfar dóma Hæstaréttar í júní síðast liðnum óskaði Creditinfo eftir upplýsingum frá fjármála- og lánastofnunum um þau mál sem komið höfðu til skráningar á vanskilaskrá Creditinfo og féllu undir umrædda dóma Hæstaréttar. Viðbrögð við þessum umleitunum voru mjög góð og í júlí voru tæplega 700 færslur afskráðar á vanskilaskrá. Þessi fjöldi afskráninga skilaði því jafnframt um 300 einstaklingar fóru þar með af skrá.