Frétt
16.08.2010 11:15
Yfirlýsing vegna fréttaumfjöllunar RUV um CIP áhættumat einstaklinga
Í frétt á RÚV kl 18:00 sunnudaginn 08. ágúst var því haldið fram að fyrirtækið Creditinfo hafi brotið lög með sölu á CIP áhættumati einstaklinga. Hið rétta er að ekki er um ágreining á heimild til miðlunar á upplýsingum að ræða heldur að Creditinfo hefði þurft ad tryggja betur að viðkomandi einstaklingur hafi veitt samþykki sitt með skriflegum hætti og geti því ekki vísað i ábyrgð viðskiptavina sinna hvað þessar upplýsingar varðar.
Í umræddu tilfelli gerðist notandi að þjónustu Creditinfo sekur um brot á ákvæðum samnings og fór ekki eftir skilyrðum sem sett voru en þær fólu í sér upplýst samþykki við könnun á áhættumati. Notendur gátu ekki sótt upplýsingar öðruvísi en að staðfesta að þeir hefðu fengið skriflegt samþykki viðkomandi. Jafnframt sendi Creditinfo öllum tilkynningu um að sótt hafi verið áhættumat á þá.
Leiðrettist þetta því hérmeð en nánari upplýsingar má einnig sjá a vef Creditinfo, frett 30.juni sl sem birt var strax i kjölfar úrskurðar PV þar sem þjónustan var fjarlægð af þjónustuvef fyrirtækisins. Einnig ber að nefna að um eina tegund upplýsinga er að ræða „CIP áhættumat einstaklinga“ en ekki almenna miðlun fjármála- eða vanskilaupplýsinga.
http://www.creditinfo.is/um-creditinfo/Frettir/Stok-frett/2010/06/30/Creditinfo-a-Islandi-lokar-adgangi-ad-einstaklingsahaettumati/
Til bakaLeiðrettist þetta því hérmeð en nánari upplýsingar má einnig sjá a vef Creditinfo, frett 30.juni sl sem birt var strax i kjölfar úrskurðar PV þar sem þjónustan var fjarlægð af þjónustuvef fyrirtækisins. Einnig ber að nefna að um eina tegund upplýsinga er að ræða „CIP áhættumat einstaklinga“ en ekki almenna miðlun fjármála- eða vanskilaupplýsinga.
http://www.creditinfo.is/um-creditinfo/Frettir/Stok-frett/2010/06/30/Creditinfo-a-Islandi-lokar-adgangi-ad-einstaklingsahaettumati/