Frétt
16.06.2010 15:02Til baka
Creditinfo vaktar auglýsingakostnað stjórnmálaflokka
Í aðdraganda sveitastjórnakosninganna 2010 fóru forsvarsmenn Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs þess á leit við Creditinfo að fyrirtækið færi með eftirlit með auglýsingakostnaði flokkanna í kosningabaráttunni.
Flokkarnir gerðu á milli sín samkomulag þar sem kveðið var á um að hámark kostnaðar vegna framboða flokkanna á landsvísu yrði 11 milljónir fyrir hvern flokk. Samkomulagið náði yfir auglýsingar í helstu ljósvaka- og netmiðlum og dagblöðum á landsvísu.
Við eftirlitið var stuðst við upplýsingar frá flokkunum, fjölmiðlum og auglýsingastofum.
Creditinfo vill jafnframt koma eftirfarandi á framfæri:
- Sérblöð sem eru fylgirit dagblaða eru ekki innifalin í ofangreindum útreikningum.
- Öflun og úrvinnsla gagna er unnin í trúnaði við fjölmiðla, birtingarhús, auglýsingastofur og stjórnmálaflokka.
- Ofangreindar upplýsingar eru unnar eftir fastmótuðum reglum af starfsmönnum Creditinfo. Reynt er að gæta þess að upplýsingar séu ávallt sem réttastar en sá fyrirvari er hér gerður að ekki er hægt að ábyrgjast að svo sé.
Sýnishorn af skýrslunni er að finna hér