Frétt

09.06.2010 14:12

Staða heimila í júní 2010

Creditinfo stóð fyrir lokuðum upplýsingafundi fyrir fjármálafyrirtæki miðvikudaginn 9.júní sl...

Á fundinum voru kynntar nýjar upplýsingar frá Creditinfo er varða vanskil og fleira, þ.m.t. viðhorf almennings til skulda heimilanna.  Á fundinum kynnti Creditinfo nýja notendasíðu fyrir starfsmenn fjármálafyrirtækja þar sem kröfuhöfum er gert kleift að fylgjast með þróun vanskila sundurliðað eftir landshlutum, kyni, fjölskylduformum, líkum á vanskilum, brottflutningi o.fl.  Notendasíðunni er ætlað að aðstoða aðila við ákvarðanatöku á t.d. úrræðum fyrir heimilum.  Af því tilefni var notendasíðan einnig opnuð þeim þingmönnum sem unnið hafa að skuldavanda heimilanna sbr vinnuhóp félags- og tryggingamálanefndar Alþingis.   Á fundinum var einnig farið yfir hvaða þjónustu Creditinfo getur boðið upp á í formi fræðslu og námskeiða til að auðvelda starfsmönnum fjármálafyrirtækja að hagræða vinnu sinni og fækka röngum vanskilatilkynningum til einstaklinga, að fræða starsfmenn fjármálafyrirtækja um feril krafna í löginnheimtu og margt fleira.  Þá var kynnt til sögunnar ný skýrsla sem gerir útibúum og smærri fjármálafyrirtækjum kleift að hafa yfirsýn og eftirlit með sínu viðskiptasafni, t.d. með markaðshlutdeild í huga, vanskilahlutfall og/eða horfum á vanskilum.  Er skýrslunni m.a. ætlað að nýtast stjórnendum til aðstoðar við að grípa fyrr inn í taumana þegar fjárhagserfiðleikar eru yfirvofandi.  Sýnishorn úr dagskrá má sjá með því að smella hér.

Til baka
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi