Frétt

04.06.2010 15:35

Lítið traust til fjölmiðla - Vefmiðlar taka forystuna

Í öðru hluta rannsóknar Creditinfo á stöðu íslenskra fjölmiðla má sjá að almenningur dregur hlutlægni þeirra í efa í umfjöllun tengdri efnahagshruninu.
Eignarhald og jákvæð umfjöllun um viðskiptalífið fyrir hrun hafa þar mest áhrif. Það er mat Creditinfo að í þessu umhverfi séu sóknarfæri fyrir vefmiðla vegna þess hraða og efnismagns sem þeir geta boðið uppá á meðan gömlu miðlarnir glíma við kostnaðaraðhald. Nýtt og aukið vægi vefmiðla sést vel á því að 57% frétta um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis birtast á þeirra síðum.
Til baka
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi