Frétt

29.05.2010 16:22

Yfirsýn stjórnenda um skráningar og ábyrgð

Skv. 40. gr einkahlutafélagalaganna nr. 138/1994 getur stjórnarmaður hvenær sem er sagt sig úr viðkomandi stjórn og gerir það þá með því að tilkynna afskráningu sína skriflega til RSK.
Honum ber einnig að tilkynna stjórninni úrsögn sína, þar sem sú skylda hvílir á hinum í stjórninni að kjósa nýjan stjórnarmann. Creditinfo telur margt benda til þess að einstaklingar, sem eru skráðir stjórnarmenn víða í Hlutafélagaskrá, skorti yfirsýn yfir það hvaða stjórnum þeir skipa, sem aðalmenn eða varamenn. Eins að menn séu lítið upplýstir um breytingar sem gerðar eru á stjórnum félaga, t.d. hvaða einstaklingar sitja með þeim í stjórn. Í dag eru ríflega 400 fyrirtæki með „auða“ stjórn, þ.e. engir eru skráðir í stjórn þeirra. Í lögum um ábyrgð stjórnarmanna segir meðal annars, að verði félag án stjórnar skulu þeir sem síðast gegndu stjórnarstörfum formlega skoðast í fyrirsvari uns ný stjórn tekur við. Meira

Til baka
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi