Stök frétt
08.07.2010 11:43
Viðbrögð við umleitan þessari hafa verið góð og búið er að afskrá tæplega 700 færslur. Rúmlega 300 einstaklingar fóru þar með alveg af skrá. Þess ber að geta að það er langur vegur frá því að öll gengistryggð lán í vanskilum hafi verið skráð á vanskilaskrá. Vinna við leiðréttingar stendur enn þá yfir, en annríki fjármögnunarfyrirtækja vegna áðurnefndra dóma, auk almennra sumarfría, valda óhjákvæmlega einhverjum töfum.
Í bréfum til Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, Byrs, Sparisjóðs Keflavíkur og SPRON, var óskað eftir fundum með þessum aðilum þar sem farið yrði yfir hvort einhver mál frá viðkomandi lánastofnunum væru sambærileg þeim málum sem komu fyrir Hæstarétt í júní. Stendur sú vinna enn yfir.
Creditinfo kýs að hraða afgreiðslu þessara mála eins og kostur er þannig að allar leiðréttingar séu frágengar fyrir miðjan júlí. Ýmsir utanaðkomandi þættir, sem félagið hefur takmörkuð áhrif á, kunna að valda einhverjum töfum. Engu að síður ættu leiðréttingar að vera frágengnar að langmestu leyti um miðjan júlímánuð.
Atgal
Afskráningar af vanskilaskrá vegna gengistryggðra lána
Í framhaldi af dómum Hæstaréttar Íslands varðandi gengistryggð lán, sendi Creditinfo bréf, sem afhent voru þann 18. júní, til fjármögnunarfyrirtækja, banka og sparisjóða. Fjármögnunarfyrirtækin Lýsing, Avant, SP-Fjármögnun og Íslandsbanki-Fjármögnun voru beðin um upplýsingar um mál sem komið höfðu til skráningar á vanskilaskrá Creditinfo og voru sambærileg þeim málum sem dæmt var í af Hæstarétti.