Frétt

30.06.2010 14:29

Creditinfo á Íslandi lokar aðgangi að einstaklingsáhættumati.

Creditinfo á Íslandi hefur lokað aðgangi áskrifenda að einstaklingsáhættumati þar sem fram kemur hvort einstaklingur er í áhættuflokki A, B, C, D eða E eftir því hve líklegur eða ólíklegur viðkomandi er til að lenda í alvarlegum vanskilum.
Sambærilegt áhættumat er víðast hvar þekkt erlendis og notað í tengslum við reiknings- og lánsviðskipti, hvort sem er við ákvörðun um að veita lán eða að umbuna skilvísum greiðendum með betri kjörum. 

Sjá dæmi um slíkt áhættumat hér.

Notkun þessara upplýsinga er háð samþykki einstaklingsins sjálfs.  Einstaklingurinn fær síðan staðfestingu senda á lögheimili að upplýsingar hafi verið sóttar.  Í kjölfar slíkrar tilkynningar komst upp um uppflettingu á áhættumati áskrifanda án heimildar.   Einstaklingurinn lét vita sem leiddi til þess að Persónuvernd hefur nú óskað eftir því  að félagið geri ,,viðhlítandi ráðstafanir” til að tryggja að tilvik sem þetta geti ekki endurtekið sig. 

Creditinfo vinnur nú að því að skoða með hvaða hætti hægt er að bæta öryggi þess að einstaklingur gefi ávallt samþykki áður en hægt er að nálgast upplýsingar sem þessar.  Þá má geta þess að Creditinfo vinnur jafnframt að því að auka upplýsingar til almennings með rafrænum hætti, hvort sem verður í gegnum kerfi Creditinfo eða í gegnum samstarfsaðila eins og heimabanka.  Í framtíðinni er gert ráð fyrir að heimildir til upplýsingamiðlunar hérlendis verði meira í samræmi við það sem þekkist í nágrannalöndunum.  Þetta þýðir þá m.a. miðlun á jákvæðum fjárhagsupplýsingum, reiknilíkönum til að aðstoða fólk af vanskilaskrá og margt fleira. 

Nánar um áhættumat Creditinfo má sjá hér.

Nánar um úrskurð Persónuverndar vegna áhættumats má sjá hér.


Til baka
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi