Frétt
21.06.2010 11:05Til baka
Áhrif dóms Hæstaréttar á skráðar vanskilafærslur
Þann 16. júní dæmdi Hæstiréttur gengisbindingu lána ólögmæta. Creditinfo hefur sett sig í samband við kröfuhafa sem eiga, eða kunna að eiga, færslur á skrá yfir vanskil vegna þessara mála í þeim tilgangi að flýta leiðréttingum svo fljótt sem kostur er.
Það má reikna með að það taki einhvern tíma að taka saman umrædd mál. Er sú vinna þegar farin af stað og ætti að ljúka næstu daga.