Um Creditinfo
Creditinfo er leiðandi fyrirtæki í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga auk þess að bjóða upp á fjölbreytta fjölmiðlaþjónustu. Fyrirtækið byggir á grunni tveggja eldri fyrirtækja, Lánstrausts sem stofnað var árið 1997 og Fjölmiðlavaktarinnar sem upphaflega var hluti af Miðlun hf. sem stofnuð var árið 1980. Lánstraust keypti Fjölmiðlavaktina árið 2004 og fyrirtækin tvö sameinuðust formlega í upphafi árs 2008 undir heitinu Creditinfo Ísland. Ári síðar var nafninu breytt í Creditinfo.
Creditinfo starfrækir stærsta gagnabanka landsins í opinni þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir og ræður yfir eina miðlæga gagnagrunni sinnar tegundar á Íslandi.
Creditinfo er í eigu Creditinfo Group sem er með starfsemi í fjölda landa, helst í Mið- og Austur Evrópu. Creditinfo Group hefur frá árinu 2004 verið valið eitt af 500 framsæknustu frumkvöðlafyrirtækjum Evrópu af samtökunum Europe's Entrepreneurs for Growth. Listinn hefur verið birtur frá árinu 1995.
Framkvæmdastjóri Creditinfo er Rakel Sveinsdóttir, áður framkvæmdastjóri Fjölmiðlavaktarinnar. Starfandi stjórnarformaður Creditinfo er Hákon Stefánsson, fyrrum framkvæmdastjóri Lánstrausts.
Hjá Creditinfo starfa um 50 starfsmenn en hjá Creditinfo Group um 450 manns.
Skráðu þig á póstlista Creditinfo og fáðu sent fréttabréf
Skrá mig