VOG - vanskilaskrá
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir stöðu viðskiptamanna sinna og á það ekki síst við þegar um láns- eða reikningsviðskipti er að ræða. Upplýsingar um vanskil eru nauðsynlegar forsendur fyrir ákvarðanatöku í viðskiptum.
Upplýsingar í VOG eru sóttar í þrjá gagnagrunna:
Vanskilaskrá
Inniheldur vanskilaupplýsingar um einstaklinga og lögaðila. Í vanskilaskrá eru annars vegar upplýsingar um innheimtuaðgerðir sem eiga sér stað eða eru yfirvofandi auk upplýsinga um vanskil á grundvelli tilkynninga frá viðskiptavinum Creditinfo. Skráin er uppfærð jafnóðum og upplýsingar berast Creditinfo, hvort sem um er að ræða skráningu eða afskráningu. Færslur í vanskilaskrá falla út þegar Creditinfo berast upplýsingar um uppgjör kröfu að baki skráningu eða þegar fjögur ár eru liðin frá heimildardagsetningu hennar.
Rekstrarsöguskrá
Inniheldur upplýsingar um þá aðila sem gegnt hafa ábyrgðarstöðu (formaður stjórnar, stjórnarmaður, varamaður, framkvæmdastjóri, stofnandi) í tveimur eða fleiri félögum skráðum í hlutafélagaskrá sem úrskurðuð hafa verið gjaldþrota á síðustu 4 árum.
Kaupmálar og fjárræðissviptingar
Skrá yfir kaupmála, lögræðis-, sjálfræðis- og fjárræðissviptingar, innkallanir vegna opinberra skipta og slit á fjárfélögum. Inniheldur upplýsingar sem skráðar hafa verið úr Lögbirtingablaðinu síðan 1996.
VOG - sýnishorn