Vanskilavakt
Vöktun skráninga í vanskilaskrá hjá viðskiptavinum sem búið er að samþykkja í reikningsviðskipti eykur verulega gæði og öryggi í útlánastarfsemi. Vaktin sendir notendum daglega tilkynningar ef vaktaðir viðskiptavinir eru skráðir í vanskilaskrá. Slíkt gefur svigrúm til viðeigandi ráðstafana svo sem að lækka eða loka á úttektarheimildir eða kalla eftir auknum tryggingum.