Þjóðskrá

Viðskiptavinir Creditinfo geta fengið aðgang að þjóðskrá sem inniheldur upplýsingar um íslenska ríkisborgara. Notendur ýmissa viðskiptamannakerfa, svo sem Tok plús, dk viðskiptahugbúnaðar, Snerta, Navision og Stólpa, geta fengið vefþjónustutengingu við þjóðskrá og fyrirtækjaskrá. Vefþjónustan er uppfærð daglega og birtir grunnupplýsingar sem innihalda nafn, kennitölu, heimilisfang, póstnúmer og bæjarfélag. 

Mögulegt er að fá aðgang að viðbótarupplýsingum og heimilisfangaleit í þjóðskrá sé þess þörf en  aðgangur er háður leyfi frá Hagstofu Íslands og hefur Creditinfo milligöngu um slíkar umsóknir.

Með aðgangi að þjóðskrá fylgja upplýsingar úr fyrirtækjaskrá.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi