Markhópalistar

Markhópalistar

Bein markaðssetning

Lykilatriði í öflugri markaðssókn er vel skilgreindur markhópur og mikilvægt er að eyða hvorki tíma né fjármunum í að kynna vörur eða þjónustu til rangra aðila. Með góðum markhópalista og vel skilgreindum markhópi nærð þú betri árangri í beinni markaðssetningu.

Markhópar

Ef þig vantar aðstoð við að greina þinn markhóp, þá eru ráðgjafar Creditinfo reiðubúnir til að greina þitt viðskiptasafn og koma með hugmyndir að næstu skrefum.

Creditinfo býður einnig upp á staðlaða lista, bæði í áskrift og stakri sölu. Sem dæmi má nefna:

Nýskráð fyrirtæki, áskrift:
Nýskráningar fyrirtækja teknar saman í upphafi hvers mánaðar. Þú færð grunnupplýsingar* um fyrirtækin og nafn framkvæmdastjóra.
Verð á mánuði: kr 9.900 + vsk

Mestur hagnaður:
Listi yfir þau 1.000 fyrirtæki sem skiluðu mestum hagnaði á síðasta rekstrarári. Nafn framkvæmdastjóra, netföng, símanúmer  og upplýsingar um hagnað fylgja með.
Verð á lista: 75.000 + vsk

Virk  fyrirtæki:
Creditinfo aðgreinir virk fyrirtæki frá óvirkum þannig að þitt markaðsefni nýtist eins vel og kostur gefst. Í dag eru um 7.500 virk fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
Verð á lista: 130.000* + vsk

* Verð miðast við grunnupplýsingar fyrirtækis (nafn, kennitala, heimilisfang, starfsemi skv ISAT og rekstrarform)

Aðrir möguleikar

  • Úrtök úr Þjóðskrá, með eða án símanúmera
  • Markhópalisti unnin úr gögnum ökutækjaskrár
  • Úrtök byggð á flestum ársreikningastærðum (hagnaður, heildareignir, rekstrartekjur o.fl)
  • Getum útilokað fyrirtæki úr listunum sem eru með miklar líkur á vanskilum
  • Ef þú ert með séróskir varðandi markhópalista, þá getur þú haft samband við okkur í síma 550 9641 og við gerum þér tilboð.

 

Frekari upplýsingar um markhópalista getur þú fengið hjá ráðgjöfum Creditinfo í síma 550 9600 eða með því að senda tölvupóst.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi