Marketinfo
Marketinfo er heildstæð lausn á sviði upplýsingaöflunar fyrir sölu- og markaðsdeildir fyrirtækja. Innifalið í þjónustunni er gott aðgengi að ráðgjöfum Creditinfo sem aðstoða fyrirtæki við að sérsníða sölu- og markaðsupplýsingar að þeirra þörfum. Nú þegar hafa mörg fyrirtæki nýtt sér þjónustuna og eru þau sammála um að það aðstoði við að gera markaðsstarfið markvissara og mælanlegra. Ferlið er fljótlegt og þægilegt. Ráðgjafar Creditinfo geta mætt á fundi með skömmum fyrirvara og öll vinnsla tekur skamman tíma.
Ef þú hefur áhuga á að kynna þér þjónustuna nánar hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma: 550-9600 eða sendu okkur tölvupóst.
Marketinfo samanstendur af eftirfarandi þáttum:
Byggir á viðskiptasafni fyrirtækisins sem unnið er fyrir. Greiningarsérfræðingar Creditinfo útbúa skýrslu sem auðveldar sölu- og markaðsdeildum fyrirtækja við að finna bestu mögulegu markhópana.
Bæði er hægt að gera skýrslur yfir viðskiptasöfn byggð á einstaklingum og fyrirtækjum.
Skýrsla byggð á kennitölum einstaklinga sýnir hlutfall aðila í viðskiptasafni greint eftir aldri og kyni, búsetu, fjölskylduformi og tekjum.
Skýrsla byggð á kennitölum fyrirtækja gefur ítarlegt yfirlit yfir markaðshlutdeild fyrirtækis eftir landshlutum, atvinnugrein, stærðarflokki fyrirtækis og CIP-áhættumati.
Þegar búið er að taka ákvörðun um hvaða markaðshluta á að taka fyrir í markaðsátaki þá getur Marketinfo sniðið markhópalista að þörfum fyrirtækisins.
Skýrslan getur einnig nýst markaðs- og söludeildum fyrirtækja sem mælitæki fyrir árangur markaðsstarfs ef hún er gerð með reglulegu millibili fyrir fyrirtæki.

Út frá markhópagreiningunni gefst stjórnendum færi á að setja saman þann markhópalista sem þeim hentar og skiptir þá ekki máli hvort listinn innihaldi upplýsingar um einstaklinga eða fyrirtæki.
Vegna aðgengis Creditinfo að stærstu gagnagrunnum landsins er hægt að búa til markhópalista eftir nánast öllum skilyrðum sem fyrirtæki setja.
Markhópalistarnir eru unnir upp úr upplýsingum eftirfarandi gagnagrunna:
- Hlutafélagaskrá ríkisskattstjóra
- Þjóð- og fyrirtækjaskrá
- Ökutækja- og vinnuvélaskrá
- Fasteignaskrá Íslands
- Ársreikningaskrá Creditinfo Lánstrausts hf
- Fjölmiðlagrunni Creditinfo Fjölmiðlavaktarinnar ehf
- Já.is
Margskonar lista er einnig hægt að fá í mánaðarlegri áskrift og ber þar helst að nefna lista sem inniheldur upplýsingar um nýstofnuð fyrirtæki. Styrkleiki Creditinfo felst í því magni upplýsinga sem fyrirtækið hefur aðgang að en þar ber hæst sá möguleiki að geta greint hvort viðkomandi fyrirtæki sé með virka starfsemi eða ekki.
Einnig er hægt að fá upplýsingar um netföng, símanúmer, fjölda starfsmanna, eignir fyrirtækisins, veltu o.fl. Allir listar eru afhentir sem Excel skjal en einnig er hægt að fá upplýsingar prentaðar á límmiða fyrir kynningarefni.

Fjölmiðlavöktun
Með notkun Fjölmiðlavaktarinnar geta stjórnendur vaktað alla umfjöllun um fyrirtækið sitt í fjölmiðlum, hvort sem umfjöllunin birtist í ljósvaka-, prent- eða netmiðli. Við vöktum umfjöllunina og komum henni til viðskiptavina okkar bæði í gegnum tölvupóst og í gegnum heimasvæði á creditinfo.is með skilvirkum og einföldum hætti.
Það er sífellt erfiðara að fylgjast vel með öllum fréttum sem geta birst á álagstímum í ólíkum miðlum um þitt fyrirtæki. Með Fjölmiðlavaktinni er það vandamál úr sögunni þar sem allir helstu miðlar samfélagsins eru vaktaðir.
Vörumerkjavöktun
Felur í sér að vakta alla umfjöllun á netinu um valin vörumerki á vinsælum spjallsíðum eins og barnaland.is og er.is, einnig eru vinsælar blogg- og auglýsingasíður vaktaðar. Vörumerkjavöktunin gerir fyrirtækjum kleift að fylgjast með allri umræðu um sín vörumerki á vefnum. Nýlegar kannanir sýna að 95% af íslensku þjóðinni á aldrinum 18 – 67 ára nota veraldarvefinn daglega, því margborgar það sig að nýta sér vörumerkjavöktun Creditinfo.
Auglýsingavöktun
Gengur út á samantekt allra auglýsinga sem birtast í öllum stærstu prentmiðlum landsins eins og Morgunblaðinu, Fréttablaðinu, DV og Viðskiptablaðinu. Notagildi þessarar vöru birtist fyrst og fremst í því að halda vel utan um markaðsherferðir viðkomandi fyrirtækis og um leið hafa góða yfirsýn yfir markaðsherferðir samkeppnisaðila. Einnig hefur vöktunin mikið sögulegt gildi hvað varðar varðveislu á auglýsingum til lengri tíma.
Með henni er hægt að fletta upp innlendum fréttum í öllum helstu prent- og ljósvakamiðlum frá 1.3.2005. Þetta getur reynst dýrmætt ef skoða þarf umfjöllun um eigið fyrirtæki aftur í tímann eða til að kynna sér umfjöllun um fyrirtæki sem eru að sækjast eftir viðskiptum. Með því að hafa aðgang að fréttaleit Creditinfo fer aldrei á milli mála með hvaða hætti umræðan fór fram eða hver sagði hvað og hvenær í fjölmiðlum landsins.