Kröfuhafakerfi

Í tengslum við rekstur Innheimtukerfis lögmanna (IL+), býður Creditinfo upp á kröfuhafavef sem er eitt stoðkerfa IL+.

Um er að ræða vef sem kröfuhafi skráir sig inn á og getur leitað að kröfum eftir kennitölu eða nafni skuldara, kröfunúmeri, innheimtubyrjun, kröfustöðu eða kröfutegund. Á vefnum er hægt er að taka út stöðulista í excel en einnig er hægt að senda listann beint með tölvupósti. Kröfuhafi  getur jafnframt skoðað upplýsingar um útreikninga á einstökum málum.

Innheimtuaðili stýrir því hvaða upplýsingar birtast kröfuhöfum en viðkomandi getur engu breytt því eingöngu er um skoðunaraðgang að ræða. Til að kröfuhafi geti fengið aðgang að vefnum verður hann að hafa aðgang að internet tengingu og fá úthlutað aðgangsauðkennum frá eiganda kerfisins.

Aðgangur að kröfuhafavefnum er virðisaukandi þjónusta við kröfuhafa og sparar tíma innheimtufyrirtækja.

Eftirfarandi tæknibúnaður er nauðsynlegur til að geta nýtt sér kröfuhafakerfið:
Nýjasta útgáfu IL+ á hverjum tíma. Til að keyra vefinn þarf vefþjón með Windows 2003 Server stýrikerfi, með IIS 6.0. Samband þarf að vera milli vefþjónsins og IL+ gagnagrunns.

Til að  fá nánari upplýsingar um kröfuhafavefinn er hægt að senda tölvupóst á il@creditinfo.iseða hringja í 550 9600.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi