Inntak

Í tengslum við rekstur Innheimtukerfis lögmanna (IL+), býður Creditinfo inntakskerfi sem er eitt stoðkerfa IL+. Inntak auðveldar lestur textaskrár inn í IL+ og gerir þeim sem stunda löginnheimtu, og nota IL+, kleift að skrá inn nýjar kröfur hraðar og á öruggari hátt en með venjulegum innslætti.

Inntakskerfið er kerfiseining sem getur lesið gögn úr textaskrá sem búin hefur verið til samkvæmt reglum hugbúnaðarsviðs Creditinfo. Hægt er að ná upplýsingum úr flestum bókhaldskerfum og lesa yfir í IL+.

Hjá fyrirtækjum með mörg mál í innheimtu sparar Inntakskerfið tvímælalaust mikla innsláttarvinnu og er umfram allt trygging fyrir að gögn verði ekki rangt slegin inn sem eykur öryggi til muna.

Til að panta aðgang eða fá nánari upplýsingar um innheimtukerfi er hægt að senda tölvupóst á il@creditinfo.is eða hringja í 550 9600.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi