Framúrskarandi fyrirtæki 2010
Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins.
Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 178 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki. Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur, t.d. bankahrunið 2008.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
- Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2007 til 2009
- Að vera í CIP áhættuflokkum 1-3 í janúar 2011 (minna en 1% líkur á vanskilum)
- Að sýna ≥ 0 kr. rekstrarhagnað (EBITD) þrjú ár í röð, 2007 - 2009
- Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð, 2007 – 2009
- Eignir séu 100 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2007 – 2009
- Að eigið fé sé 20% eða meira rekstrarárin 2007 – 2009
- Að vera virkt fyrirtæki samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
Listi yfir þau fyrirtæki sem stóðust styrk- og stöðugleikamatið er fánlegur hjá Creditinfo. Hann inniheldur allar fjárhagsupplýsingarnar sem eru taldar upp hér að ofan, almenn netföng fyrirtækjanna, póstföng fyrirtækjanna og netföng framkvæmdastjóra.
Nánari upplýsingar um listann veitir Jóhann Níels Baldursson í síma 550-9600 eða með því að senda tölvupóst á netfangið johannb(hjá)creditinfo.is.