Dómasafn
Í Dómasafni Creditinfo er að finna alla hæstaréttardóma sem fallið hafa frá stofnun Hæstaréttar árið 1920, auk þeirra dóma undirréttar sem áfrýjað hefur verið. Mikil áhersla er lögð á gæði safnsins og á að dómar séu ávallt réttir. Leitarvél hefur nýlega verið endurhönnuð og beygingarorðasafn tengt við hana. Margvísleg leitarskilyrði spara notendum tíma og auðvelda leit að þeim dómum sem þörf er á. Reifanir dóma eru aðgengilegar á stórum hluta dómasafnsins. Reifanirnar birtast í textaboxi þegar músinni er rennt yfir númer dóms í leitarniðurstöðum. Þessi framsetning getur auðveldað aðgreiningu á því hvort dómur sem leitin skilar eigi við það sem leitað var að. Nú þegar hefur stór hluti dómasafnsins verið reifaður eða tímabilin 1920-1959; 1967-1980 og 1999-2011. Unnið er að því að bæta við þeim reifunum sem upp á vantar. Einnig er unnið að því að skrá lagatilvísanir á dóma og er þeirri skráningu lokið fyrir dóma frá árunum 1920-1954.
Notendur dómasafns hafa nú aðgang að heimasvæðinu Mitt Dómasafn sem gerir þeim kleift að safna saman dómum á einn stað til að vinna með þá síðar og setja inn athugasemdir við dóma sem verið er að vinna með.
Nánari upplýsingar fást hjá ráðgjöfum Creditinfo í síma 550-6900 eða með tölvupósti.