Lánsviðskipti
Creditinfo
býður traustar upplýsingar um stöðu viðskiptavina sem gera þér kleift að lágmarka áhættu í viðskiptum.
Rétt og markviss notkun upplýsinga Creditinfo auðveldar fyrirtækjum að leggja mat á viðskipti og hafa eftirlit með þeim.
Með því að fylgja vel skilgreindu ferli er hægt að hámarka útlán til viðskiptavina með lágmarksáhættu.
Upplýsingar Creditinfo geta komið að góðum notum á öllum þremur stigum reikningsviðskipta.
Ákvörðun
Þegar tekin er ákvörðun um hvort veita eigi lánsviðskipti er mikilvægt að styðjast við allar upplýsingar sem liggja fyrir. Með upplýsingum Creditinfo á fyrirtæki þitt auðveldara með að meta stöðu viðskiptavina og setja skilyrði fyrir viðskiptum.
Eftirlit
Mikilvægt er að vakta alla viðskiptavini til að fylgjast með breytingum á upplýsingum sem lágu til grundvallar við ákvörðun um viðskipti. Breyttar grundvallarforsendur geta þýtt að endurskoða þurfi viðskiptaskilmála eða jafnvel huga að innheimtu vanskila . CIP áhættuvakt Creditinfo fylgist með breytingum
sem
fela í sér auknar eða minni líkur á alvarlegum vanskilum.
Vanskilavakt Creditinfo fylgist með skráningu og afskráningu
alvarlegra vanskila.