Skýrslur um erlend fyrirtæki

Creditinfo er umboðsaðili fyrir Dun & Bradstreet Inc auk fjölda annarra erlendra fyrirtækja á sviði fjárhags- og markaðsupplýsinga. Þessi öflugu viðskiptatengsl gera Creditinfo kleift að bjóða ítarlegar lánshæfisskýrslur um erlend fyrirtæki frá öllum heimshornum.

Erlendir samstarfsaðilar Creditinfo hafa verið vandlega valdir með tilliti til gagnamagns og áreiðanleika upplýsinga í hverju landi. Lánshæfisskýrslur um erlend fyrirtæki, sem eru byggðar á sama grunni og LT-skýrsla Creditinfo, auðvelda og auka öryggi daglegra ákvarðana er varða lánshæfi og greiningu fjárhagslegs styrks núverandi eða tilvonandi birgja og samstarfsaðila. Skýrslurnar koma jafnframt að góðum notum við eftirlit á lánshæfi viðskiptavina.

Á meðal upplýsinga sem skýrslurnar innihalda eru:

• Ársreikningar
• Stjórn
• Eigendur
• Lykilstarfsmenn
• Lýsing á starfsemi
• Stofndagur og ár
• Viðskiptabanki
• Upplýsingar um dótturfélög
• Alvarleg vanskil
• Lánshæfismat

Fjölmörg íslensk fyrirtæki nýta sér þjónustu Creditinfo þegar meta þarf lánshæfi erlendra fyrirtækja og greina fjárhagslegan styrk þeirra. Erlendar skýrslur eru pantaðar á vef Creditinfo í gegnum þar til gert pantanaform og annast þjónustusvið Creditinfo úrvinnslu og afgreiðslu þeirra. Starfsmenn Þjónustusviðs hafa áralanga reynslu af umsýslu erlendra skýrslna og skjót þjónusta og ánægja viðskiptavina er höfð í fyrirrúmi.

Frekari upplýsingar fást með því að senda tölvupóst á reports@creditinfo.is eða hringja í 550 9600

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi