Greiðsluhegðunarkerfi
Greiðsluhegðunarkerfi Creditinfo er mikilvægt þegar meta þarf greiðsluhæfi núverandi og væntanlegra viðskiptavina.
Skýrslan sýnir hvernig tiltekið fyrirtæki greiddi að meðaltali reikninga sína á hverjum ársfjórðungi miðað við eindaga og hversu margir greiðsluseðlar liggja til grundvallar hverju sinni. Því er í mörgum tilvikum hægt að sjá hvernig greiðsluþróun viðkomandi fyrirtækis hefur verið og hvernig hún er að þróast.
Skilvís og áreiðanleg fyrirtæki fá því hugsanlega betri kjör og hagstæðara greiðslufyrirkomulag um leið og hinum síðri er sýnd meiri varkárni og einhver skilyrði mögulega sett fyrir lánveitingum eða reikningsviðskiptum.