Ársreikningar
Ársreikningar veita upplýsingar um fjárhagslega stöðu fyrirtækja og eru því mjög gagnlegir við heildarmat þeirra. Creditinfo býður upp á tvenns konar upplýsingamiðlun vegna ársreikninga.
Boðið er upp á skönnuð afrit ársreikninga skilaskyldra félaga sem hafa verið skráðir hjá ríkisskattstjóra og birtast í upphaflegri mynd.
Einnig er boðið upp á ársreikninga í stöðluðu formi og er um
að ræða þá sem skilað hefur verið til ríkisskattstjóra frá 1995, skv. lögum um ársreikninga. Í stöðluðum ársreikningum Creditinfo eru helstu lykiltölur birtar án frekari útskýringa.
Hlutafélög (hf), einkahlutafélög (ehf) og samvinnufélög (svf) eru skilaskyld.