CIP áhættumat einstaklinga

Í reiknings- og lánsviðskiptum er mikilvægt að vinnubrögð séu samhæfð við lánshæfismat einstaklinga.  Með þeim hætti er hægt að tryggja að einstaklingar sitji við sama borð og þeim sé þá best umbunað sem skilvísastir eru, óháð meðal annars tekjum, stöðuheiti eða tengslum. Með áhættumati er einnig öruggara að ákvörðun um lánveitingu eða kjör byggi á nýjum upplýsingum, að matið fari ekki fram huglægt, að það sé samanburðarhæft við aðra viðskiptavini og framkvæmt á augabragði. 

CIP áhættumatið flokkar einstaklinga í áhættuhópa og tekur reiknilíkanið mið af fjölmörgum þáttum er hafa mismikið vægi en á meðal þeirra eru:
  • Aldur
  • Kyn
  • Búseta
  • Hjúskaparstaða
  • Upplýsingar úr skatta- og útsvarsskrá
  • Uppflettingar í vanskilaskrá
  • Tengsl við fyrirtæki


CIP áhættumat má ekki sækja nema fyrir liggi heimild einstaklingsins til þess að skoða þessar upplýsingar. Þeir aðilar sem geta nýtt sér áhættumatið eru fjármálafyrirtæki og tryggingafélög sem lúta eftirliti Fjármálaeftirlits samkvæmt lögum nr. 87 / 1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Listi Fjármálaeftirlitsins

CIP Áhættumatið er hannað af systurfélagi Creditinfo, Creditinfo Decision, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og hönnun módela við stýringu útlánaáhættu (e: Credit Risk Management).


Allir einstaklingar 18 ára og eldri geta óskað eftir að fá sitt CIP áhættumat sent til sín og þá eru niðurstöður sendar á lögheimili viðkomandi.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi