Creditinfo hefur unnið ítarlega greiningu sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki fengu bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins m.v. ýmsar lykiltölur og breytur.
Af rúmlega 32 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá sýna 358 fyrirtæki þann styrk í mælingum Creditinfo að verðskulda viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki“.
Vertu í sambandi og sérfræðingar fyrirtækjasviðs Creditinfo munu hafa samband við fyrsta tækifæri.

Listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2012 má nálgast hér neðar á síðunni undir "tengt efni".
Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
að hafa skilað ársreikningum til RSK 2009 til 2011
minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2009 - 2011
að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2009 til 2011
að vera með skráðan framkvæmdastjóra í hlutafélagaskrá
að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo