CIP lánshæfismat einstaklinga

Í reiknings- og lánsviðskiptum er mikilvægt að vinnubrögð séu samhæfð við lánshæfismat einstaklinga.  Með þeim hætti er hægt að tryggja að einstaklingar sitji við sama borð og þeim sé þá best umbunað sem skilvísastir eru, óháð meðal annars tekjum, stöðuheiti eða tengslum. Með lánshæfismati er einnig öruggara að ákvörðun um lánveitingu eða kjör byggi á nýjum upplýsingum, að matið fari ekki fram huglægt, að það sé samanburðarhæft við aðra viðskiptavini og framkvæmt á augabragði.  

CIP lánshæfismat flokkar einstaklinga í áhættuhópa og tekur reiknilíkanið mið af fjölmörgum þáttum er hafa mismikið vægi en á meðal þeirra eru: Aldur, kyn, búseta, hjúskaparstaða, upplýsingar úr skatta- og útsvarsskrá, uppflettingar í vanskilaskrá, tengsl við fyrirtæki og fleira.

CIP lánshæfismat má ekki sækja nema fyrir liggi heimild einstaklingsins til þess að skoða þessar upplýsingar. Þeir aðilar sem geta nýtt sér lánshæfismatið eru fjármálafyrirtæki og tryggingafélög sem lúta eftirliti Fjármálaeftirlits samkvæmt lögum nr. 87 / 1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Lista Fjármálaeftirlitsins má finna hér neðst á síðunni.


CIP lánshæfismat er hannað af systurfélagi Creditinfo, Creditinfo Decision, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og hönnun módela við stýringu útlánaáhættu (e: Credit Risk Management).

Allir einstaklingar 18 ára og eldri geta óskað eftir að fá sitt CIP lánshæfismat sent til sín og þá eru niðurstöður sendar á lögheimili viðkomandi.